Peter Monaghan er fyrsti snigla ræktandin á Írlandi! Við fyrstu kynni er eitt alveg augljóst. Hann elskar sniglana sína og hefur brennandi áhuga á því að deila þekkingu sinni og hæfileikum til sniglaræktunar með heiminum. Þegar Pétur var að skoða mögulega ræktunarmöguleika rakst hann á snigla og áttaði sig á að stofnkostnaðurinn og áhættan voru tiltölulega lág. Þannig árið 2015 stofnaði hann Inis Escargot.
Hvers vegna að rækta snigla?
Sniglar hafa lengi verið notaðir í eldamennsku, sérstaklega í Afríku, suðaustur Asíu og við Miðjarðarhafið í Evrópu. Mörgum finnst það líklegast nokkuð ógeðslegt að borða snigla, en þeir eru próteinrík fæða, með mikið magn af járni og magnesíum og lítið af fitu. Ræktun snigla krefst nokkuð lítils viðhalds og hefur miklu minni umhverfisáhrif en hefðbundin húsdýr. Þannig getur þessi matur verið leið til hollari og umhverfisvænni lífsstíls. Sniglar eru einnig að taka þátt í snyrtivöruiðnaðinum þar sem slímið þeirra er ríkt af glýkóprótínum, hýalúronsýrum og andoxunarefnum. Þessi efni hjálpa með að viðhalda raka í húðinni, græðslu sára og get yngt upp húðina.
Íslendingar taka þátt í sniglaiðnaðinum
Í samstarfi við Eim, fékk hópur af bóndum frá norðurlandi að ferðast til Írlands og heimsækja Pete og sjá hvað sniglaræktun snýst um. Vissir þú að þegar um 40.000 sniglar éta hljómar það eins og brakið í Rice Krispies morgunkorni þegar það er sett í mjólk? Bændurnir fengu líka að sjá hvernig snigla eggjum er safnað og hversu sætir og hraðir litlir sniglarnir eru strax eftir að þeir klekjast, eða eins og fagmenn kalla það, morphing.
Íslenskir sniglar
Á sumum svæðum á landsbyggðinni er stór hluti af heitu vatni sóað í hitaveitukerfum. Á þeim svæðum er fólk að reyna að finna nýjungagjarnar leiðir til að nýta þessa orku. Sigurður Líndal Þórisson hjá Eim hefur verið að kanna slíka möguleika og komst að því að sniglarækt gæti verið frábært tækifæri. Sniglarækt gæti verið kærkomið tækifæri til að auka fjölbreytni tekjustrauma hjá bændum á landsbyggðinni og veita þeim nauðsynlegan stuðning. Bráðum gætu gömlu minkabúin og ónotaðir hænsnakofar orðið heimili fyrir hljóðlátustu húsdýrin.
Að matreiða snigla
Sniglar geta verið matreiddir á ýmsa vegu, en aldrei á að borða þá hráa. Það er hægt að láta þá krauma í heilulagi (enn í skelinni) í ilmandi sósu og bera þá fram þannig alveg eins og í myndinni Pretty Woman. Þeir eru líka góðir í súpum og pottréttum, eða djúpsteyktir. En ekki eru allir sniglar ætlaðir í matinn fyrir okkur, sumir ættu frekar að vera notaðir sem fæða fyrir gæludýr, eins og t.d. ef þú átt eðlur. Þannig ég spyr þig… Þegar fyrstu sniglar verða matreiddir hérlendis munt þú vera einn af þeim hugrökku og prófa smakka þá?




