PRV (Piscine orthoreovirus) er veira sem hefur áhrif á hjarta og vöðva í laxfiskum. Þetta getur valdið miklu tjóni í fiskeldi og einnig haft áhrif á heilsu náttúrlega vistkerfisins. Þar til nú hefur það ekki verið þekkt hversu algeng þessi veira er meðal íslenskra laxfiska. Teymi rannsakenda hjá Keldum, tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði, leitt af Dr. Birki Þór Bragasyni lögðu í þá vegferð að rannsaka og læra meira um PRV á Íslandi.
Á Íslandi eru laxfiskar (bleikjur, laxar og urriðar) menningarlega og efnahagslega mikilvægar fiskitegundir. PRV finnst í þessum tegundum um allan heim. Því hóst teymið hjá Keldum handa við að kanna hvort þessi veira er einnig til staðar í laxfiskum hérlendis og hversu algeng er hún.
Að meta hvort fiskur sé með veiru
Fyrsta skrefið var að veiða fiskana. Birkir, Heiða Sigurðardóttir, Marina de la Cámara og Árni Kristmundsson sem öll vinna hjá Keldum sáu um sýnasöfnunina sem átt sér stað milli áranna 2015 til 2025. Þau söfnuðu laxfiskum frá mismunandi tegundum og aldurshópum frá bæði villtum stofnum og fiskeldi. Í heildina voru 837 laxar, 254 bleikjur og 105 urriðar notaðir í þessari rannsókn. Þessir fiskar komu frá átta mismunandi stöðuvötnum, þremur sleppiám og átta bóndabýlum um allt land.
Heiða og Marina könnuðu síðan hvort fiskarnir væru með veiruna (hægt er að sjá teikningu af veirunni hér að neðan). Marina kannaði einnig hvort það væri mismunandi afbrigði/stofnar af veirunni og hvort þessi afbrigði tengdust mismunandi fiskitegundum eða umhverfi.
Að lokum skoðið Árni vefi í líkama sýktu fiskanna til að sjá hvort veiran hefur áhrif á uppbyggingu vefsins.
PRV finnst í íslenskum laxfiskum
Þau fundu PRV í þó nokkrum fiskum. PRV fannst í öllum þremur tegundunum: bleikju, lax og urriða bæði í eldisfiskum og villtum fiskum. Þar að auki fundu þau mismunandi stofna af PRV. Á mynd hér að neðan er hægt að hjá hlutfall fiska sýktir með PRV. Til dæmis voru allir eldislaxarnir (sem voru notaðir í þessu verkefni) með PRV sýkingu. PRV fannst í um 75% af eldisbleikjum. Teymið kannaði einnig hvort sýkingartíðni væri tengd við umhverfið sem fiskurinn býr við. Þau sáu að það var miklu hærra sýkingarhlutfall hjá eldislöxum og eldisbleikjum heldur en villtu stofnunum. Einnig voru mjög fáir villtir urriðar sýktir.
Vert sé að taka fram að þetta er fyrst rannsóknin í heiminum sem staðfestir PRV í bleikjum og fyrsta rannsóknin sem staðfestir PRV í urriðum hérlendis.
Hvað þýðir þetta fyrir Ísland?
Þetta er fyrsta rannsóknin sem sýnir frá á PRV sýkingu í bleikjum og íslenskum urriðum. Þær upplýsingar bæta skilning okkar á því hvaða fiskitegundir PRV getur haft áhrif á.
Sem betur fer, er PRV ekki að hafa stórtækileg áhrif á eldis- og villta fiskistofna hérlendis eins og nú stendur. Rannsakendur þurfa þó að vera á varðbergi, þar sem breytingar á umhverfinu (eins og hlýnun vatns) getur leitt til þess að PRV sýkingar aukast hérlendis.
Þess vegna er mikilvægt að halda áfram rannsóknum á þessar veiru til að skilja áhrif hennar á íslenska laxfiska. Mikilvægt næsta skref er að kanna einnig aðfluttar laxfiskategundir (eins og hnúðlaxinn og regnbogasilunginn) til að sjá hvort PRV hefur áhrif á þær tegundir.




