Er fiskurinn þinn stressaður?

Hefur þú einhvern tímann pælt í því hvort bleikju flökin fyrir kvöldmatinn komu frá hamingjusömum fisk?  Sabine Lobligeois er doktorsnemi við Háskólann á Hólum sem er að rannsaka hvort hægt sé að segja til um hvort eldisfiskar eru stressaðir. Sabine sá aldrei fyrir sér að hún myndi vinna í fiskeldi hvað þá að vinna með fiska yfir höfuð. En henni hefur alltaf fundist hegðun dýra mjög forvitnileg. Henni langaði að skilja af hverju dýr haga sér á vissan veg og hvað mótar hegðun þeirra. Þegar hún var að vinna hjá bleikjukynbótarstöð Háskólans á Hólum tók hún eftir því að sumir fiskar hegðuð sér öðruvísi en hinir, mjög forvitnilegt. Frá fyrra námi við Háskólann á Hólum lærði Sabine að fiskar vaxa betur við auðgað umhverfi heldur en í tómum tönkum. Fiskar hafa líka mismunandi persónuleika. Sumir fiskar eru forvitnir og hvatvísir á meðan aðrir eru meira hikandi og forðast átök. Þessir persónuleikar sýna fylgni við vöxt, þannig hægt er að velja fyrir vöxt með því að velja sérstök persónuleikaeinkenni.

Lítil bleikja að taka þátt í tilraun til að kanna dirfsku. Þeim fljótari sem fiskur er að synda úr felustaðnum sínum og synda um á opna svæðinu þeim mun djarfari er hann.

Í rannsóknunum sínum sameinar Sabine hegðun og lífeðlisfræðileg gögn til að segja til um hver er besta breytan til að meta stress og þar með velferð fisksins. Hún elur eldisbleikjur í einföldu og auðguðu umhverfi og líkir eftir streituvaldandi aðstæðum, t.d. með því að taka fiska úr vatninu í 30 sekúndur. Hún tekur margar mismunandi mælingar við vissa tímapunkta yfir þroskunarferlið og sameinar hegðunar og líkamleg einkenni. Til að mæla langtíma stress sem er afleiðing þess að vera alin upp í einföldu umhverfi þá mælir Sabine vöxt og fitumagnið í lifrinni, þar sem margir fiskar geyma fitu í lifrinni. Það er lifrarstuðull (hepatosomatic index): hlutfall þyngdar lifrar af heildarþyngd líkamans. Skammtíma stress var mælt með því að taka blóðsýni stuttu eftir streituvaldandi atburðinn og mæla magn stresshormónsins kortisól í blóðinu. Ætlunarverk Sabine er að finna áreiðanlega leið til að mæla velferð fiska. Til að kanna það mun hún bera saman fylgni milli mismunandi mælinga.

Bleikjuseiði sem eru alin upp með auka skjól í tankinum sínum. Svo einföld breyting getur hjálpa með að minnka árásargirni, þar sem fiskar geta falið sig frá hvor öðrum og mannfólki sem á leið fram hjá. Þetta gæti verið einföld lausn til að bæta vellíðan fiska og gæti meira að segja aukið vöxt.

Rannsóknir á velferð fiska í fiskeldi eru mjög mikilvægar þar sem fiskeldis fiskar eru aldir upp við mikinn þéttleika í umhverfi með engri auðgun (þ.e. engar plöntur, eða aðrir felustaðir). Jafnvel þó fiskeldi hámarka vöxt, út af hagræðis ástæðum, og vöxtur er góður mælikvarði á velferð fiska þá segir það ekki alla söguna. Í hefðbundnum búskap (búfénaðarrækt) hefur velferð dýra verið viðfangsefni rannsókna til fjölda ára og vitundarvakning hefur verið mjög mikil. Í fiskeldi er á hinn bóginn enn deilt um hvort fiskar finna fyrir sársauka, svo það er enn langt í land. Mikilvægi þessa rannsókna er einnig að aukast þar sem hlutfall eldisfiska í fæðu okkar miðað við villta fiskar er að hækka.

Sabine vonar að hún getur aukið vitundavakningu almennings um velferð eldisfiska og veitt fiskeldunum ráðgjöf byggða á vísindum til að bæta aðstæður fiskanna. Sabine er núna á lokasprettinum í doktorsnáminu sínu og mun fljótlega kynna niðurstöðurnar frá verkefninu, þannig fylgist endilega með!

Sabine Lobligeois, doktorsnemi við Háskóla íslands.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *